Fréttir

Ágóðinn af Bókmenntahátíð barnanna

Nemendur Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit tóku þátt í verkefninu Bókmenntahátíð barnanna í desember 2025. Þetta var samvinnuverkefni milli fjögurra skóla á Norðurlandi; Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, Valsárskóla á Svalbarðseyri, Reykjahlíðarskóla og Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit. Nemendurnir skrifuðu barnabók, hönnuðu bókarkápu og teiknuðu myndir í bókina. Þegar bók er gefin út þarf að sjálfsögðu að stofna bókaforlag fyrir útgáfuna og að útbúa merki forlagsins. Í Reykjahlíðarskóla var bókaforlagið Dimmuborgir stofnað og voru 11 ólíkar bækur fyrir börn gefnar út. Þær voru seldar á Bókmenntahátíð barnanna að Hrafnagili og svo var haldin lítil hátíð í Reykjahlíðarskóla fyrir íbúa Mývatnssveitar.

Skákmót

Skákmót Reykjahlíðarskóla var haldið í byrjun febrúar. Keppt var í tveimur flokkum, yngri flokkur 1. – 7. bekkur og eldri flokkur 8.-10. bekkur. Yngri flokkur spilaði eftir Monrad kerfi en í eldri flokknum spiluðu allir við alla. Þrjátíu nemendur tóku þátt í mótinu en aðrir nemendurnir æfðu sig að tefla á sama tíma.