Skákmót

Skákmót Reykjahlíðarskóla var haldið í byrjun febrúar. Keppt var í tveimur flokkum, yngri flokkur 1. – 7. bekkur og eldri flokkur 8.-10. bekkur.

Yngri flokkur spilaði eftir Monrad kerfi en í eldri flokknum spiluðu allir við alla.

Þrjátíu nemendur tóku þátt í mótinu en aðrir nemendurnir æfðu sig að tefla á sama tíma.

Úrslit.

Yngri flokkur

  1. Hjalti Hrafn Sigurðarson

2.-3. Eldey Gerda Garðarsdóttir og Elmar Þór Rúnarsson

Eldri flokkur

  1. Bjartur Arnarsson
  2. Aron Dagur Ottósson
  3. Amelia Ásdís Kozaczek