Í Þingeyjarsveit starfar fræðslu- og velferðarnefnd fyrir leik-, grunn- og tónlistarskóla.
Í 6. gr. í lögum um grunnskóla, segir að:
Í hverju sveitarfélagi skal í umboði sveitarstjórnar vera skólanefnd sem fer með málefni grunnskóla eftir því sem lög og reglugerðir ákveða og sveitarstjórn eða sveitarstjórnir kunna að fela henni.
Meginhlutverk skólanefndar er sem hér segir:
- að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem eiga rétt á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu
- að staðfesta starfsáætlun skóla ár hvert og skólanámskrá einstakra skóla
- að fylgjast með framkvæmd náms og kennslu í sveitarfélaginu og gerð skólanámskrár og gera tillögur til skólastjóra og/eða sveitarstjórnar um umbætur í skólastarfi
- að fylgjast með og stuðla að því að nemendum og skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu
- að sjá til þess að jafnan sé fyrir hendi viðeigandi húsnæði fyrir kennslu og annar aðbúnaður, þ.m.t. útivistar- og leiksvæði nemenda
- að hafa eftirlit með að ákvæði laga og reglugerða séu uppfyllt og gera tillögur til sveitarstjórnar um úrbætur
- að stuðla að tengslum og samstarfi leikskóla og grunnskóla annars vegar og grunnskóla og framhaldsskóla hins vegar.
Skólanefnd er kosin af sveitarstjórn. Fulltrúi foreldra, kennara og skólastjóra eiga rétt til setu á skólanefndarfundum með málfrelsi og tillögurétt.