Nemendaverndarráð

Nemendaverdarráð

Í 40. grein grunnskólalaga 2008 segir m.a. :
„Skólastjóri skal samræma innan hvers skóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda er lúta að sérfræðiþjónustu, námsráðgjöf og skólaheilsugæslu með stofnun nemendaverndarráðs. Jafnframt skal stuðla að samráði við félagsþjónustu sveitarfélags og barnaverndaryfirvöld vegna málefna einstakra nemenda eftir því sem þurfa þykir.“
Í nemendaverndarráði starfa, skólastjóri, skólahjúkrunarfræðingur, fulltrúi Félags- og skólaþjónustu og einn kennari skólans. Auk þess sitja einstaka fundi kennarar eða aðrir sem til eru kallaðir eða hafa sjálfir óskað eftir að leggja mál fyrir fundinn. Mikilvægt er að nemendur geti leitað til kennara og annarra starfsmanna skólans með vandamál sín. Lipurt upplýsingastreymi og samræmi í aðgerðum getur skipt sköpum um líðan nemenda.

Nemendaverndarráð 2025-2026

Huld Aðalbjarnardóttir, skólastjóri
Jóna Ósk Antonsdóttir, skólahjúkrunarfræðingur
Starfsmaður skólaþjónustu Þingeyjarsveitar
Ólöf Þuríður Gunnarsdóttir, sérkennari
Auk umsjónarkennara viðeigandi nemenda.

Fundir verða þá u.þ.b. einu sinni í mánuði og erindi hafa borist til ráðsins. Þegar erindi berast er þess gætt að foreldrar hafi vitneskju um ef til stendur að ræða um barn þeirra á fundum. Það geta allir vísað erindum til nemendaverndarráðs.

Tilvísun til nemendaverndarráðs Reykjahlíðarskóla