Nýr vatnsbrunnur í skólanum

Í vikunni var settur upp nýr og glæsilegur vatnsbrunnur í sal skólans við mjög góðar undirtektir nemenda og starfsmanna. Með góðu samstarfi skólans og nemendafélagsins við Landsvirkjun sem styrkti kaupin á brunninum og með góðri aðstoð Daníels Ellertssonar sem tengdi brunninn geta nú nemendur og starfsfólk auðveldlega fengið sér ferskt og kalt vatn á hverjum degi. Við í skólanum viljum færa nemendafélaginu, Landsvirkjun og Daníel okkar allra bestu þakkir fyrir glæsilegt framtak, vel unnin störf og ómetanlegan stuðning. Takk fyrir okkur.