Ágóðinn af Bókmenntahátíð barnanna
04.03.2026
Nemendur Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit tóku þátt í verkefninu Bókmenntahátíð barnanna í desember 2025. Þetta var samvinnuverkefni milli fjögurra skóla á Norðurlandi; Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, Valsárskóla á Svalbarðseyri, Reykjahlíðarskóla og Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit.
Nemendurnir skrifuðu barnabók, hönnuðu bókarkápu og teiknuðu myndir í bókina. Þegar bók er gefin út þarf að sjálfsögðu að stofna bókaforlag fyrir útgáfuna og að útbúa merki forlagsins. Í Reykjahlíðarskóla var bókaforlagið Dimmuborgir stofnað og voru 11 ólíkar bækur fyrir börn gefnar út. Þær voru seldar á Bókmenntahátíð barnanna að Hrafnagili og svo var haldin lítil hátíð í Reykjahlíðarskóla fyrir íbúa Mývatnssveitar.