Markmið verkefnisins var að auka skilning nemenda á loftslagsbreytingum, náttúruvá og umhverfismálum með verklegu námi og alþjóðlegu samstarfi. Hvert land lagði sérstaka áherslu á náttúruvá sem tengist nærumhverfi þess: Hér heima var viðfangsefnið eldgos og jarðhiti, Póllandi var með skógarelda, í Rúmeníu voru það flóð og þurrkar og í Tyrklandi voru jarðskjálftar.
Í verkefninu unnu nemendur að fjölbreyttum verkefnum. Þeir tóku meðal annars þátt í STEAM-verkefnum og tilraunum, umhverfisverkefnum, skapandi verkefnum, stafrænum verkefnum og verkefnum tengdum viðbrögðum við náttúruvá. Nemendur bjuggu einnig til sameiginlegar afurðir, meðal annars kynningar, veggspjöld, Scratch-leiki, endurvinnsluverkefni og myndbönd.
Námsferðir voru mikilvægur hluti verkefnisins. Nemendur Reykjahlíðarskóla heimsóttu samstarfsskólana, tóku þátt í skólastarfi þeirra og gistu hjá fjölskyldum nemenda. Þannig fengu þeir ekki aðeins að læra um náttúruvá og umhverfismál heldur einnig að kynnast ólíkum menningarheimum og skólasamfélögum.
Dvölin hjá gestafjölskyldum og samskipti við jafnaldra frá öðrum löndum reyndu á sjálfstæði, aðlögunarhæfni og tungumálakunnáttu nemenda. Þau þurftu stundum að finna skapandi leiðir til samskipta þegar sameiginlegt tungumál dugði ekki til. Í gegnum verkefnið mynduðust vináttutengsl milli nemenda og sum þeirra hafa haldið áfram samskiptum eftir að námsferðunum lauk.
Samstarfið fór einnig fram á eTwinning/TwinSpace, þar sem skólarnir deildu verkefnum, afurðum og reynslu og unnu saman á milli námsferða. Þannig varð verkefnið ekki aðeins röð heimsókna heldur samfellt tveggja ára samstarf nemenda og kennara í fjórum löndum.
Verkefnið hefur gefið nemendum tækifæri til að tengja nám við raunverulegar aðstæður, efla umhverfisvitund og stafræna færni og upplifa hvernig ungt fólk frá ólíkum löndum getur unnið saman að sameiginlegum viðfangsefnum.
Climate Justice for Change lauk formlega í ágúst 2026, en tengslin og reynslan sem urðu til í verkefninu munu nýtast áfram í skólastarfi Reykjahlíðarskóla.
Smelltu hér til að skoða nokkarar myndir frá verkefninu
Hér má einnig skoða stutt video