Gjöf frá Kvenfélagi Mývatnssveitar og Slysavarnardeildinni Hring

Í byrjun vikunnar komu Ingibjörg Lukka skólahjúkrunarfræðingur og Jóna Ósk hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslunni í heimsókn til okkar á unglingastigi og voru með kennslu í endurlífgun. En um daginn fékk skólinn 6 endurlífgunardúkkur að gjöf frá Kvenfélagi Mývatnssveitar og Slysavarnardeildinni Hring.
Þessi veglega gjöf styrkir verulega getu okkar til að kenna mikilvæg björgunarviðbrögð en dúkkurnar tengjast við forrit í spjaldtölvum sem leiðbeina okkur áfram meðal annars um hraða og dýpt á hnoði.
Við erum afar þakklát Kvenfélaginu og Slysavarnadeildinni fyrir þennan mikilvæga stuðning við öryggisfræðslu nemenda okkar. Þessi gjöf mun án efa skila sér margfalt til samfélagsins í auknu öryggi og betri viðbragðsgetu ungmenna okkar.