eTwinning verkefni ársins 2026

Verkefnið var valið eTwinning-verkefni ársins á Íslandi 2026 og hlaut jafnframt íslenska gæðamerki eTwinning (National Quality Label). Nú hafa einnig borist þær gleðifréttir að verkefnið hafi hlotið evrópska gæðamerkið (European Quality Label), sem veitt er verkefnum sem uppfylla ströng evrópsk gæðaviðmið.

Climate Justice for Change var tveggja ára Erasmus+ samstarfsverkefni skóla frá Íslandi, Póllandi, Rúmeníu og Tyrklandi, þar sem Reykjahlíðarskóli fór með verkefnisstjórn.

Markmið verkefnisins var að efla umhverfisvitund nemenda og auka skilning þeirra á loftslagsbreytingum, náttúruhamförum og áhrifum þeirra á samfélög víðs vegar um heiminn.

Hvert þátttökuland lagði áherslu á ólíkar umhverfisáskoranir. Á Íslandi var sjónum beint að eldvirkni, í Póllandi að skógareldum, í Tyrklandi að jarðskjálftum og í Rúmeníu að flóðum og þurrkum.

Nemendur og kennarar fengu tækifæri til að heimsækja samstarfsskólana, kynnast ólíkum menningarheimum og vinna saman að fjölbreyttum verkefnum tengdum náttúru, vísindum og umhverfismálum.

Í mati á verkefninu var sérstaklega tekið fram að samstarfið hefði verið vel skipulagt og að verkefnið hefði haft jákvæð áhrif á bæði nemendur og kennara. Þá var lögð áhersla á gott samstarf skólanna og hvernig þeir hefðu tekist á við þær áskoranir sem upp komu á verkefnistímanum.

Evrópska gæðamerkið er enn frekari staðfesting á gæðum verkefnisins, en í tilkynningu frá eTwinning kemur fram að vinna nemenda, kennara og samstarfsaðila hafi uppfyllt evrópsk gæðaviðmið og hlotið háa einkunn.

Viðurkenningarnar eru mikil hvatning fyrir skólasamfélagið og sýna að öflugt og metnaðarfullt alþjóðlegt samstarf getur blómstrað í litlum skólum.

Við erum afar stolt af þessum árangri og þakklát öllum þeim nemendum, kennurum og samstarfsaðilum sem lögðu sitt af mörkum til verkefnisins.

Þótt verkefninu sé formlega lokið mun reynslan, þekkingin og vináttan sem myndaðist í samstarfinu lifa áfram innan skólanna.