Vorhátíð leikskólans Yls verður föstudaginn 5. júní.
Hátíðin hefst klukkan 14:00 og verður boðið upp á pylsur og ís! Hoppukastali verður á svæðinu ásamt því að Daði kemur með hesta til að fara á hestbak. Útskrift elsta árgangs verður á sínum stað og við hvetjum foreldra til að skoða listaverk barnanna sem verða til sýnis inni í leikskólanum.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest í sumarskapi! :)