Veturinn 2026 lærðu börnin að gera skyr frá grunni. Skyrgerðin hófst á heimsókn í fjósið á Skútustöðum til að sjá hvernig mjólkin verður til og síðan var haldið í leikskólann og skyrið útbúið. Börnin enduðu síðan á því að smakka skyrið sem lagðist misvel í börnin.
Haustið 2024 nýttu börnin jarðvarmann úr nærumhverfinu við bakstur á rúgbrauði. Þau settu rúgbrauðið ofan í holu, sóttu það daginn eftir og smökkuðu við komuna í leikskólann.
Vorið 2024 bjuggu börnin til sín eigin veiðarfæri og fengu fræðslu um beitu og hvernig henni skuli komið fyrir. Þau héldu síðan út á ísilagt Mývatn með veiðarfærin ásamt nesti. Foreldrar fengu að fara með og úr varð mjög skemmtilegur dagur.