Það er margt skemmtilegt búið að gerast hjá okkur í febrúar!
- Dagur leikskólans og þorrablót leikskólans var haldið föstudaginn 6. febrúar og heppnaðist sá dagur mjög vel! :)
- Bolludagur, sprengidagur og öskudagur voru mjög skemmtilegir dagar, sérstaklega öskudagurinn þar sem eldri krakkarnir sungu fyrir nammi í fyrirtækjum á meðan yngri krakkarnir fóru í íþróttahúsið. Dagurinn endaði síðan á öskudagsballi fyrir allan hópinn.
- Við héldum konudagskaffi fyrir ættingja og vini og var mjög gaman að sjá hversu margar konur gátu komið og notið þess með okkur.
- Við ætlum síðan að enda mánuðinn á því að glitra öll saman á föstudaginn!
Í fataklefanum höfum við bætt við myndum af starfsfólki á upplýsingatöfluna okkar og þannig auðveldar það börnunum og foreldrunum að sjá hvaða starfsfólk er á hvorri deild yfir daginn :) Einnig ætlum við að reyna að vera duglegri að setja þar á það sem við erum að gera yfir daginn ásamt tilkynningum þannig að það er mjög mikilvægt fyrir foreldra að skoða þessa töflu :)