Gjafir til leikskólans

Í dag, föstudag, komu þrjár dásamlegar konur fyrir hönd Krabbameinsfélags Suður-Þingeyinga og færðu þær leikskólanum sólarvörn fyrir nemendur og starfsfólk.

Um daginn færði Foreldrafélag skólanna í Mývatnssveit starfsfólki leikskólans Loop eyrnatappa að gjöf. Þeir henta vel fyrir leikskólakennara en þeir lækka hávaða án þess að maður missi af því sem er að gerast í kringum sig.

Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir þessar frábæru gjafir!